Tónlist er stór liður í verki sem þessu og þar af leiðandi má ekki hver sem er sjá um tónlistina.

Lokalagið í myndinni verður líklegast samstarf á milli mín og tónlistarmannsins Svavars Knúts Kristinssonar. Hann sigraði einmitt á dögunum trúbadorakeppni Rásar 2 með laginu sínu Dansa.
Lagið Dansa er gott dæmi um það sem ég vil ná fram með tónlistinni í myndinni.

Önnur tónlist í myndinni verður svo í mínum höndum og öðrum hæfileikaríkum listamanni, Nino Beganovic og fyrirtækinu hans prodz.net, en Nino er einnig nemandi við Högskolan i Skövde og stundar sama nám og ég, margmiðlunarnám með áherslu á kvikmyndagerð.