Þegar ég byrjaði að hugsa um lokaverkefnið mitt og hvað það væri sem ég ætlaði að gera þá vildi ég nota þá sérstöðu sem ég hef í bekknum mínum, að vera Íslendingur.

Íslensk náttúra og saga hefur ætíð verið mér ofarlega í huga og taldi ég að kjörið væri að nýta menningarlegar rætur mínar við gerð stuttmyndar, sérstaklega þar sem markhópurinn er sænskir samnemendur og kennarar.

Í aðalatriðum fjallar myndin um náttúru Íslands (reyndar jarðarinnar í heild sinni) og hvernig nútímaþjóðfélagið gengur á auðlindir hennar. Hvernig maðurinn hunsar þær viðvaranir sem náttúran gefur okkur varðandi eyðileggingu jarðarinnar og hvernig við höfum ekki lært af reynslunni. Allt er þetta stór hluti af myndinni.

Verkið hefur skírskotun í bæði Völuspá og Gylfaginningu, á þann hátt að ég vef saman hið íslenska nútímalíferni við líf og trú forfeðra okkar Íslendinga.