
Stefán Drengsson heiti ég og er nemi við Högskolan i Skövde. Ég hef verið að læra margmiðlun með áherslu á kvikmyndagerð, og er núna að vinna að lokaverkefninu mínu.
Lokaverkefnið mitt er stuttmynd sem nefnist "Örlög".
Myndin verður að öllum hluta tekin upp á Íslandi og hefur einungis íslenska leikara. Íslensk náttúra og þjóðlíf mun spila stóra rullu í myndinni.
Mér til aðstoðar við gerð myndarinnar eru nokkrir en sérstaklega vil ég nefna David Block, bekkjarfélaga, sem mun sjá um kvikmyndatökuna. Ég og David höfum unnið mikið saman á síðastliðnum árum við ýmis verkefni enda hefur David mikla reynslu í kvikmyndatöku.